Föt, föt, föt

Lár vinkona var að flytja til Ástralíu og þurfti að losna við föt og skó. Ég er svo heppin að nota sömu stærð og lára í fötum og skóm að hún gaf mér fullt af gömlum fötum sem hún ætlaði að henda. ÉG tók sirka helming og hinn helmingurinn fór í rauða krossinn.
Takk Lára.
Nú er ég bara orðin gella í flottum skóm :)
Nú er lítið að gerast hjá okkur, nema það að öskudagur er í næstu viku og verð ég eitthvað að sauma á krakkana, redda eða svoleiðis. Ég á svo skynsama krakka að þau ætla bæði að vera sjóræningjar. ÉG á gamlar buxur og gamla boli sem hægt er að klippa eða rífa og gera sjóræningjalegt. Við keyptum svo smá dót í Hagkaup. Það er svo gaman að vera gera smá svona heimatilbúna búninga. Vona að það endurvekjist í kreppunni.
Stórt skref var tekið í gærkvöldi þegar frumburðurinn var skráður í grunnskóla. Núna er ég tilbúin að takast á við að ég er að verða þrítug.
Aðeins eitt og hálft ár í það.









