laugardagur, apríl 30, 2011

jákvæð í move-inu

Mér gengur svo vel í átakinu mínu :) ég er bara rosa stolt af mér.
Þó að apríl hafi verið slæmur framan af er hann búinn að vera rosa góður í lokinn, það er að segja matarlega og hreyfingarlega séð.
Markmið mitt fyrir maí er að gefa mér tíma til að fara í ræktina og hugsa jákvætt. Reyna beisla smá jákvæðri orku í líkaman og hugann minn. (vó! smá yoga talk hér)

Frikki er svo awesome eiginmaður og faðir. Hann keypti handa okkur Playstation move í dag. Krakkarnir hoppa um íbúðina vegna þess þau eru svo hamingjusöm. Ég er líka nokkuð sátt með þetta. Í kvöld munum við fullorðna fólkið leika okkur.