sunnudagur, maí 08, 2011

Yndislegt! blogg

Þessi helgi er búin að vera yndisleg. Laugardagurinn byrjaði á hot yoga hjá klikkaðri kellingu. Ég er ekkert að fíla hana og fer ekki í tíma hjá henni aftur.
Vikulegi grjónagrauts hádegismatur hjá tengdó klikkar ekki.
Við kíktum svo á flóamarkaðinn í Eiðistorgi, þar keypti ég fínar gallabuxur á 1000kr og matreiðslubókarstand.
Við Frikki horfðum svo á 127hours um kvöldið, mæli með henni.

Í dag hittumst við nokkrir fjölskyldu meðlimir á kaffihúsi niðri í bæ og var það yndislegt. Vonandi endurtökum við aftur bráðlega.
Að sjálfsögðu hjóluðum við niður í bæ í þessu yndislega veðri.
Ég tók svo smá til hendinni í garðinum og krakkarnir hjálpuðu til á meðan Frikki þvoði hjólin okkar.
Ég endaði með að gera BBQ rif í kvöldmatinn, þau voru yndisleg.

Nú sit ég við tölvuna og skoða gömul Madonnu myndbönd. Sorglegt þar sem ég fíla hana ekkert sérstaklega. Netið lætur mann gera ýmislegt skrýtið.