4 dagar í stelpurnar
jæja kvef, nú hefuru 4 daga til að fara úr systeminu mínu. Ég ætla ekki að vera kvefuð eða veik í Brighton.
Ég er svo lúmsk og klár móðir að ég náði að doppla krakkana mína í sund eftir kvöldmat og við fórum bara í heita pottinn.
Þau máttu velja um að fara í sund og vera bara í heita pottinum (þar sem ég nennti ekki að hoppa og skoppa í lauginni) eða fara í bað heima. Að sjálfsögðu völdu þau pottinn :)
Ég tók svo náttföt og tannbursta með okkur og þau komu svo hrein og fín heim beint upp í rúm. Þar las ég fyrir þau og 15 mínútum seinna voru þau sofnuð.
Svona á að gera þetta. Reginn spurði reyndar hvort að við ætluðum að sofa í fataklefanum í sundi :)

Sendu inn athugasemd