hitt og þetta
jæja ég er loksins búin að jafna mig eftir endajaxlatökuna. Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að fara í svona stóra aðgerð í munninum mínum.
Sumarið fer eflaust alveg að koma, ég held í vonina. Það eru aðeins tvær vikur í Brighton og 6 1/2 vikur í sumarfrí. Jibbí
Sunna er að útskrifast á morgun úr 1.bekk í Hlíðaskóla, hún er rosa spennt fyrir næsta hausti. Þá fer hún í heimilisfræði, myndmennt, handmennt, leiklist o.fl.
Krakkarnir eru orðnir svo stórir að við hjónin erum oftar ein heima. Reginn á félaga í næsta húsi og er oft úti að leika.
Sunna á vinkonur hér allstaðar í kring og er alltaf að leika sér úti eða inni hjá öðrum stelpum.
Ég er frekar ánægð með daginn í dag. Ég þreif baðherbergið hátt og lágt og svo tók ég Sunnu herbergi í gegn. Ég tók Regins herbergi í gegn síðasta sunnudag.
Það mætti segja að ég sé eitthvað að vorhreingernast.


Sendu inn athugasemd