sunnudagur, júlí 03, 2011

Júlí kominn

Photobucket

Ég, Rebekka og Lára áttum yndislega helgi saman. Ég varð ástfanginn af Brighton sem er svo falleg.

Það er aðeins ein vika í sumarfrí hjá krökkunum og Frikka en tvær þanngað til að ég fer :(

Stefnan okkar Frikka í sumar er að nota bílinn sem minnst (nema þegar við förum upp í sumarbústað). Frikka finnst það auðveldara en mér. Mér finnst gott að hljóla en líka gott að nota bílinn. Við sjáum til hvernig gengur.

Ég er alveg að drulla á mig í þessari heilsuræktar keppni við hana Sigrúnu vinkonu. Ég var meira og minna veik í maí eða útúr dópuð af verkjatöflum eftir tannúrtöku. Nú verð ég að fara gera eitthvað svo að ég nái að hlaupa 10km í ágúst. Vonum að næsta vika verði betri.

(krosslegg fingur)