Miklar breytingar
Ég er búin að sofa svo mikið síðustu daga. Ég hlýt að vera safna í forða fyrir veturinn.
Ég er byjuð að hlakka mikið til vetrarins. Það verða miklar breytingar verða hjá okkur öllum, ég fer í skóla, frikki er að vinna og verður í einu erfiðu fagi með, Sunna fer í annan bekk og fer að æfa frjálsar (hún er búin að fá lykil að heimilinu og finnst henni það frábært). Reginn skiptir svo um deild á leikskólanum.
Núna er bara einn mánuður í skólann og 26 dagar í afmælið mitt. Ég er nú samt búin að halda heldur betur uppá afmælið mitt nú þegar, ég og Dodda áttum okkar dag, ég fór til Brighton og er líka búin að fara út að borða með vinum.



Sendu inn athugasemd