föstudagur, október 21, 2011

föstudagskvöldshugleiðingar

Ég sé á gömlu bloggi að ég hef alveg gleymt mánaðarheitunum mínum. Það segir mér aðeins eitt, ár er langur tími.
Mánaðarheiti fyrir þennann mánuð er að halda gott afmæli fyrir stelpuna mína sem verður 7 ára næsta miðvikudag. Mig langar líka að standa mig vel í skólanum en það er kannski frekar haustannarheiti.

Ég læri ýmislegt í strætó og meðal annars hvað er heitt í klæðaburði hjá menntskælingum. Það er greinilega þykkar dúnúlpur með loðkraga sem er málið í dag. Sem er gott.
Alveg eins og þegar KRAFT-gallatískan var hjá okkur fædd í kringum ´81.

Photobucket