köben í október
Yndisleg Köben helgi að baki.
Ferðasagan
fimmtudagur: lentum seint, kjöftuðum við Andra og Sibbu, fórum svo að sofa.
föstudagur: vöknuðum og fórum niður í bæ. Keyptum föt fyrir krakkana og mig. Danir eru greinilega ekki hávaxið fólk því Frikki fann ekkert á sig :´(
Við Frikki fengum okkur hádegismat á strikinu og horfðum á fólkið ganga framhjá. Hinum megin var maður að spila á fiðlu svo við fengum smá dinnermúsík með.
Sibba og Andri elduðu dýrindis máltíð handa okkur og á meðan vorum við Frikki að CHILLA. Rosalega gott að hafa ekkert að gera.
Við spiluðum svo um kvöldið og höfðum mjög gaman af. Við spiluðum Alias og kepptum við stelpur á móti strákum. Að sjálfsögðu vann betra liðið.
Sibba að fylgjast vel með tímanum
laugardagur: vöknuðum seint, röltuðum niðri í bæ og fengum okkur kaffisopa
um kvöldið fórum við á veitingarstaðinn Mother og fengum okkur gómsætar pizzur.
pizza með kartöflum, rósmarín, hvítlaukur, rjómaostur
Hráskinka, pesto ofl
Nammi, namm!
Sunnudagur: slappað af og heimferð
Takk fyrir okkur, Sibba og Andri!!!










Sendu inn athugasemd