mánudagur, október 03, 2011

tölfræði og hreyfing

Ég verð að játa það að ég er öll að koma til með tölfræðina. Mér finnst rosa gaman þegar ég skil hana. Ég vil helst bara læra hana núna, öllum stundum.

Ég held að ég sé loksins að verða fullorðin. Ég er að fylgjast með fréttum af því að mig langar til þess. Svona hef ég breyst síðan ég varð þrítug :)

Sunna er núna að æfa frjálsar í þróttir og hún er algjörlega að fíla það. Hún fór að keppa síðasta laugardag og stelpan bara með svona mikið keppnisskap. Ég vona að hún haldi áfram í þessu, mér finnst líka gaman að horfa á þetta.

Reginn fer í jóga einu sinni í viku með deildinni sinni, honum finnst það æðislegt. Deildin fer líka alltaf í göngutúra á fimmtudögum. Reyndar finnst honum svo rosalega gaman í leikskólanum að hann er hálf fúll að sunnudagur sé svona lengi að líða. Mikil breyting frá því í fyrra þegar hann grét í heilan mánuð eftir aðlögun.

Frikki og ég erum dugleg að hjóla út um allt og hreyfa okkur.

Við erum sannkölluð hreyfi fjölskylda.

hér er smá súlurit með tíðni á hreyfingu fjölskyldunnar (gróflega)

Photobucket